Súld eða rigning víða um land

Kort/mbl.is

Spáð er suðlægri eða breytilegri átt í dag, yfirleitt 3 til 8 metrum á sekúndu og skúrum eða smá rigningu. Úrkomulítið verður fyrir norðan.

Súld eða rigning verður víða um land, en bjart með köflum og stöku síðdegisskúrir fyrir austan.

Hiti verður á bilinu 7 til 17 stig, hlýjast austanlands.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert