Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning seint í gærkvöldi um pakka um borð í fraktflugvél sem innihéldi sprengju. Við nánari skoðun kom í ljós að í pakkanum voru flugeldar og eftirlíkingar af skotvopnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Allri umferð til og frá Keflavíkurflugvelli var frestað í gær eftir að hótun barst um að sprengja væri um borð í fraktflugvél sem lenti á vellinum en hún var á leið frá Köln í Þýskalandi til Kentucky í Bandaríkjunum.
„Vinna sprengjusérfræðinga sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar gekk vel og pakkinn fannst eftir leit. Pakkinn var tekinn til frekari skoðunar, þar sem við gegnumlýsingu kom í ljós að hann innihélt torkennilega hluti,“ segir í tilkynningunni.
„Við nánari skoðun kom í ljós kom að í pakkanum voru flugeldar og eftirlíkingar af skotvopnum.“
Segir í tilkynningunni að aðgerðum lögreglu vegna sprengjuhótunarinnar hafi verið lokið klukkan 08.15 í morgun.
Þá segir að enginn hafi verið í hættu á meðan aðgerðum stóð og gekk verkefnið vel. Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar.