Allir sekir og 14-20 ára dómar í Rauðagerðismáli

Angjelin Sterkaj í Héraðsdómi Reykjavíkur í september í fyrra.
Angjelin Sterkaj í Héraðsdómi Reykjavíkur í september í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Angjelin Sterkaj var í dag dæmdur í Landsrétti í 20 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Arm­ando Beqirai að bana við heim­ili sitt í Rauðagerði í Reykja­vík í fyrra.

Þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coel­ho Car­val­ho og Murat Selivrada sem voru sýknuð af kröf­um ákæru­valds­ins í héraðdómi voru öll dæmd í 14 ára fangelsi.

Aðalmeðferð í mál­inu hófst 28. september í Lands­rétti, en rík­is­sak­sókn­ari áfrýjaði í nóv­em­ber sl. dómi Héraðsdóms Reykja­vík­ur sem féll 21. októ­ber í fyrra.

Ákæru­valdið fór fram á þyngri refs­ingu yfir Angjelin Sterkaj sem hlaut 16 ára dóm í héraði en ákæru­valdið fór fram á 18-20 ára dóm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert