Niðri við brimið þrátt fyrir nýtt viðvörunarkerfi

Gult ljós blikkaði á nýju skilti í Reynisfjöru í morgun.
Gult ljós blikkaði á nýju skilti í Reynisfjöru í morgun. mbl.is/Jónas Erlendsson

Búið er að setja upp nýtt viðvörunarkerfi í Reynisfjöru og í morgun blikkuðu þar gul viðvörunarljós, sem virtust þó ekki hafa mikinn fælingarmátt á ferðamenn.

Á meðfylgjandi mynd má sjá fjölda ferðamanna spóka sig í fjörunni og nokkrir eru þar alveg niðri við brimið.

Samkvæmt skiltinu þýða gul viðvörunarljós að miðlungs mikil hætta sé fyrir hendi. Og þá eigi fólk ekki að ganga út á gula svæðið.

Þá kemur skýrt fram að á svæðinu séu hættulegar ólagsöldur og að fólk skuli halda sig í öruggri fjarlægð frá briminu.

Uppsetning tafðist

Nokkur banaslys hafa orðið í Reynisfjöru á síðastliðnum árum þegar öldur hafa hrifið fólk út á haf. Síðast lést þar erlendur ferðamaður í júní og í kjölfarið skapaðist töluverð um ræða um aðgengi ferðamanna að Reynisfjöru og hvernig væri hægt að koma í veg fyrir banaslys.

Enn er unnið að frágangi á viðvörunarkerfinu og er búist því að því ljúki á næstu dögum. 

Notast er við öldusporakerfi Vegagerðarinnar á grunnsævi til að stýra viðvörunarljósunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert