Allt að 20 stiga frost

Það verður áframhaldandi kuldi á landinu í dag.
Það verður áframhaldandi kuldi á landinu í dag. Samsett mynd

Spáð er breytilegri átt og 3 til 10 metrum á sekúndu, í dag. Skýjað verður með köflum og þurrt, en sums staðar lítilsháttar él við ströndina.

Frost verður á bilinu 7 til 20 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. Suðaustan 8-15 m/s og fer að snjóa á Suður- og Vesturlandi í kvöld. Dregur úr frosti.

Á morgun verða austan og suðaustan 10-18 m/s og víða snjókoma, en úrkomulítið um kvöldið. Hægari vindur verður á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él við ströndina. Frost verður á bilinu 2 til 15 stig, kaldast norðaustantil.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert