Elon Musk, eigandi Twitter, eyddi tísti sem hann skrifaði fyrr í dag um Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrverandi starfsmann samfélagsmiðilsins.
Hafði Musk þar sagt um Harald að hann væri „sá versti“. Hafði tístið þegar verið skoðað um 560.000 sinnum áður en Musk eyddi því.
NEW: Elon Musk had deleted a tweet, calling a recently fired employee (who had muscular dystrophy) "The worst". It had already been viewed half a million times. Here's the screengrab: pic.twitter.com/92123j9xB3
— James Clayton (@JamesClayton5) March 7, 2023
Musk og Haraldur hafa skipst á skoðunum á Twitter í dag vegna uppsagnar Haraldar, sem hefur spurt hvort til standi að greiða sér vangoldin laun.
Hefur verið bent á að brottrekstur Haraldar gæti orðið Twitter dýrkeyptur, þar sem laun hans hafi verið hluti af kaupsamningi Twitter á Ueno, fyrirtæki Haraldar.