Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, krafði Birgi Ármannsson, forseta Alþingis, svara um það við upphaf þingfundar í gær hvort hann liti svo á að úrskurðarnefnd um upplýsingamál bannaði birtingu greinargerðar um Lindarhvol ehf.
Birgir hefur borið fyrir sig að greinargerðin sé vinnuskjal og því sé afhending hennar ekki heimil. Sagði hann úrskurðarnefnd um upplýsingamál í þrígang hafa komist að þeirri niðurstöðu.
„Forseti lítur svo á að þau lögfræðilegu sjónarmið sem komi fram í a.m.k. þremur úrskurðum úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 2021 hafi verulegt vægi við lögskýringu hvað álitamál varðar og er sambærilegt stöðu þess skjals sem hér er til umræðu.“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, og Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar endurtóku spurningu Bergþórs þegar fundarstjórn forseta var gagnrýnd.
Sigmar sagði stöðuna einfaldlega dapurlega og að leyndin yfir gögnunum væri orðin sjálfstætt vandamál sem skaðaði hagsmuni almennings, Alþingis auk hagsmuna Ríkisendurskoðunar.