Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var ekki með neina sérstaka vakt við sinubrunasvæðið í nágrenni við Straumsvík í nótt.
Að sögn varðstjóra hefur tekist að slökkva eldinn, en slökkviliðið fylgist þó með og sé í viðbragðsstöðu ef eldurinn skyldi blossa upp að nýju.
„Þetta er búið að okkar hálfu,“ segir hann.
Talið er að svæðið sem hefur brunnið síðan í gær nái líklega um einn til einn og hálfan kílómetra í suður og sé um 100 til 200 metra breitt.