Eins og að vera á tunglinu

Nýjar ljósmyndir sýna þá eyðileggingu sem orðið hefur í kjölfar sinubrunans í nágrenni við Straumsvík. Talið er að svæðið sem hefur brunnið síðan í gær nái lík­lega um einn til einn og hálf­an kíló­metra í suður og sé um 100 til 200 metra breitt.

Eggert Jóhannesson, ljósmyndari mbl.is sem myndaði svæðið í dag, sagði svæðið svipa til þess að „vera á tunglinu“.

Brennur í rólegheitunum

Slökkvilið fylgist enn grannt með brunanum og bíður eftir að eldurinn nálgist varnarlínur svo hægt sé að slökkva hann.

„Þetta brennur bara í rólegheitunum í átt að varnarlínunum, við erum bara með menn þarna á svæðinu til þess að fylgjast með,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, varðstjóri í aðgerðastjórn slökkviliðsins en fjórir slökkviliðsmenn vakta nú sinubrunann, og hafa gert síðan í morgun.

„[Við erum] bara að bíða eftir að eldurinn nálgist þessar varnarlínur, svo við getum slökkt þetta. En hvenær og hvort það gerist, hvort þetta slokkni bara af sjálfsdáðum – það verður bara að koma í ljós.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert