„Þetta er auðvitað þungur dómur“

Unnsteinn Örn Elvarsson og skjólstæðingur hans Páll Jónsson.
Unnsteinn Örn Elvarsson og skjólstæðingur hans Páll Jónsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er auðvitað þungur dómur,“ sagði Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi Páls Jónssonar, við blaðamenn að lokinni dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Páll hlaut þyngsta dóm sakborninganna fjögurra, eða tíu ára fangelsisdóm. Þá skal hann greiða rúmlega ellefu milljónir í lögfræðikostnað og meira en eina milljón í málskostnað.

Unnsteinn sagðist hafa vonast eftir vægari dómi. Þá sagði hann að nú yrði rýnt í dóminn, sem er meira en 100 blaðsíður, og í framhaldinu verður ákveðið hvort honum verði áfrýjað.

Verjendur hinna sakborninganna voru ekki viðstaddir dómsuppkvaðninguna, einungis fulltrúar í þeirra stað sem vildu ekki tjá sig við fjölmiðla.

Málið er stærsta kókaín­mál sem komið hef­ur upp hér á landi, en í mál­inu eru fjór­ir menn ákærðir fyr­ir að hafa, ásamt óþekkt­um aðila, ætlað að flytja inn 99,25 kíló af kókaíni hingað til lands frá Bras­il­íu með viðkomu í Hollandi, þar sem fíkni­efn­in voru hald­lögð af yfir­völd­um. Efn­in voru fal­in í sjö trjá­drumb­um.  

Hollenska lögreglan gerði tæplega 100 kg af kókaíni upptæk í …
Hollenska lögreglan gerði tæplega 100 kg af kókaíni upptæk í timbursendingunni. Ljósmynd/Hollenska lögreglan

Páll sá um að flytja inn timbrið frá Brasilíu sem fíkniefnin voru falin í. Hann sagði er aðalmeðferð hófst í málinu í janúar að andlegt þrot hafi leitt til þess að hann samþykkti að flytja inn fíkniefnin.

Vitn­is­b­urður Páls stangaðist á við vitn­is­b­urð Jó­hann­es­ar og Birg­is og sökuðu þeir báðir Pál um lyg­ar. 

Ríkissaksóknara að ákveða áfrýjun

Sonja Berndsen, aðstoðarsaksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, var viðstödd dómsuppkvaðninguna í fjarveru Önnu Barböru Andradóttur saksóknara sem fór með málið í héraðsdómi.

Sonja sagði við blaðamenn að það væri ríkissaksóknara að ákveða hvort dóminum yrði áfrýjað til Landsréttar.

Hún vildi ekki tjá sig spurð hvort að um þungan dóm væri að ræða. Embætti héraðssaksóknara mun nú rýna í dóminn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert