Lækka launakostnað og selja eignir

Opinn íbúafundur um fjármál Árborgar stendur yfir á Selfossi.
Opinn íbúafundur um fjármál Árborgar stendur yfir á Selfossi. Samsett mynd

Bæjarstjórn Árbogar ætlar að lækka launakostnað og selja bæði eignir og byggingarlóðir til þess að mæta þeim skuldavanda sem sveitarfélagið er komið í. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórn Árborgar en nú fer fram opinn íbúafundur um fjármálastöðu sveitarfélagsins. 

Morgunblaðið greindi frá því í gær, þriðjudag, að alvarleg staða væri komin upp í Árborg. Skuldahlutfall Árborgar er komið upp fyrir 150. 

„Sveitarfélagið Árborg er að takast á við mikla vaxtaverki. Leiðin út úr vandanum er tvíþætt: Í fyrsta lagi ábyrg og raunsæ fjármálastjórn og lausnamiðuð hugsun þar sem að allir ábyrgir aðilar innan sveitarfélagsins þurfa að leggja sitt að mörkum til að draga úr kostnaði, auka skilvirkni og styrkja rekstrargrunn stofnanna okkar. Í öðru lagi þurfum við að nýta þau tækifæri sem felast í þeirri uppbyggingu og fjárfestingum sem átt hafa sér stað í sveitarfélaginu á síðustu árum.

Árborg er í dag heitur reitur í ferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og mannlífi á Suðurlandi. Í því felast klárlega tækifæri sem við ætlum okkur að nýta til þess að vaxa út úr vandanum. Það mun takast með samstilltu átaki,“ segir Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, í tilkynningu.

Bæjarstjórn Árborgar hefur sett sér fjárhagsleg markmið til að ná tökum á fjármálum sveitarfélagsins. Þau markmið er að finna í tillögum að áætlun sem kallast Brú til betri vegar og var kynnt fyrir íbúum á opnum íbúafundi í dag. Meðal markmiða Brúarinnar er:

  • Auka framlegð af rekstri að jafnaði um 500 milljónir króna árlega
  • Skuldaviðmið sveitarfélagsins verði komið undir 150% eins og lög kveða á um árið 2028
  • Til lengri tíma verði skuldaviðmið Árborgar ekki hærra en 120%
  • Launakostnaður Árborgar verði komið í 56% af rekstrartekjum árið 2025 en það er um 60% í dag
  • Seldar verða byggingarlóðir og eignir fyrir 800 m.kr. 2023
  • Frá árinu 2024 er gert ráð fyrir að seldar verði eignir og byggingarlóðir fyrir 300 m.kr á ári
  • Fjárfest verði fyrir u.þ.b. 2-2,5 ma.kr til ársins 2025 til að ljúka fjárfestingum við m.a. veitur, og grunnskólann Stekkjarskóla.
  • Á árunum 2026-2029 verði fjárfestingar Árborgar á bilinu 1,2-1,5 ma.kr á ári.
  • Öll verkefni og þjónusta sveitarfélagsins verður endurskoðuð og forgangsraðað með það að markmið að fjármál Árborgar verði aftur sjálfbær.
  • Bæjarstjórn Árborgar mun óska eftir tillögum íbúa varðandi sparnað og aðhald í rekstri í gegnum vefinn Betri Árborg.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert