„Þetta var mjög skrítin upplifun“

„2009 var haldið flokksþing í byrjun árs. Þar mætir ungur …
„2009 var haldið flokksþing í byrjun árs. Þar mætir ungur maður sem ég hafði aldrei hitt og aldrei talað við. Og hann er bara kosinn formaður Framsóknarflokksins. Sigmundur Davíð nokkur,“ segir Magnús. Samsett mynd

Magnús Stefánsson, sveitarstjóri Suðurnesjabæjar og fyrrverandi þingmaður Framsóknar, segir það hafa verið skrítna upplifun þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, og nú formaður Miðflokksins, mætti á flokksþing í byrjun árs 2009 og rúllaði upp kosningunum. 

Hann segir að eftir á að hyggja hafi verið svolítill upplausnartími í Framsóknarflokknum á undan, eftir að Halldór Ásgrímsson, sagði af sér formennsku í flokknum. 

„2009 var haldið flokksþing í byrjun árs. Þar mætir ungur maður sem ég hafði aldrei hitt og aldrei talað við. Og hann er bara kosinn formaður Framsóknarflokksins. Sigmundur Davíð nokkur. Þetta var mjög skrítin upplifun. Allt í einu kemur einhver náungi þarna og rúllar upp kosningunum í flokknum. Ég sem hafði verið þingmaður þá í allan þennan tíma, ég hafði aldrei hitt hann og aldrei talað við hann. Ég vissi hver hann var,“ segir Magnús.

Frá flokksþingi Framsóknar árið 2009 er Sigmundur Davíð var kjörinn …
Frá flokksþingi Framsóknar árið 2009 er Sigmundur Davíð var kjörinn formaður flokksins. mbl.is/Árni Sæberg

Kaustu hann?

„Ég ætla ekkert að segja til um það,“ segir Magnús og hlær.

„Þannig að ég kynntist Sigmundi þarna, frá því í janúar og fram í apríl þegar kosningarnar voru,“ segir Magnús. Hann ákvað að láta af þingmennsku þá um vorið en hann hafði setið á þingi síðan 2001. Fyrir það sat hann á þingi 1995 til 1999. 

Rætt er nánar við Magnús í Hringferðarhlaðvarpi Morgunblaðsins. Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsveitum og í spilaranum hér fyrir neðan.



Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert