Landsréttur hefur mildað dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir frönskum karlmanni sem var fundinn sekur um að hafa flutt rúmlega tvö kíló af kókaíni til landsins í september í fyrra.
Taldi Landsréttur hæfilegan dóm yfir manninum vera tvö og hálft ár, en áður hafði héraðsdómur dæmt hann í þriggja ára fangelsi.
Í dómi Landsréttar er vísað til ungs aldurs mannsins, Maxence Paul Daniel Johannes, en hann er fæddur árið 2002. Einnig að hann hafi játað brot sitt og verið samvinnufús við lögreglu.
Johannes var á leið frá Brussel í Belgíu til Keflavíkur og faldi efnin í fjórum niðursuðudósum í farangurstösku sinni.
Í dómi héraðsdóms horfði það honum til refsiþyngingar hversu mikið magn efnanna var og hversu sterkt það var, en styrkleiki kókaínsins var 77-84%.
Ríkinu var gert að greiða allan áfrýjunarkostnað, samtals 645 þúsund, en ákæruvaldið fór fram á þyngingu á dómi héraðsdóms.