Forsetaframbjóðendur eru nú á ferð og flugi um landið eins og vera ber, en þær Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir héldu báðar fundi fyrir norðan í dag.
Katrín hélt meðal annars opinn fund á Lambanum á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit um morguninn og ræddi þar við gesti og gangandi. Var fundurinn vel sóttur og áhugaverður að sögn gesta. Þaðan héldu Katrín og eiginmaður hennar, Gunnar Sigvaldason, til Leifshúsa á Svalbarðsströnd.
Þau lögðu næst leið sína til Grenivíkur á Kontorinn, og luku yfirreið sinni með ferð til Hríseyjar. Lauk þar með tveggja daga ferð Katrínar og Gunnars til Norðurlands, en þau heimsóttu Mývatnssveit, Laugar í Reykjadal og Húsavík í fyrradag.
Halla Hrund fundaði með kjósendum á Móa Bistro í Hofi, og kynnti sig og stefnumál sín fyrir þeim. Var fundurinn mjög vel sóttur, en Halla Hrund ákvað í kjölfarið að fá sér hinn landsþekkta Brynjuís, líkt og hefðin býður.
Halla Hrund heimsótti Blönduós í gær og kynnti sér m.a. starfssemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem og Vilko-matvælaframleiðandann, sem hvert mannsbarn ætti að þekkja.
Á morgun, 1. maí mun hún svo halda til Húsavíkur og Mývatnssveitar og hitta kjósendur þar.