Þyrlan kölluð út vegna vinnuslyss

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti mann sem slasaðist við vinnu í Grundarfirði í kvöld. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Féll maðurinn um þrjá metra. 

Útkallið barst um klukkan hálfátta í kvöld og flaug þyrlan til móts við sjúkrabíl til að sækja manninn.

Þyrlan lenti um klukkan níu við sjúkrahúsið í Fossvogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert