Suðaustur af landinu er hæð sem er á leið austur. Það verður því hægviðri á sunnanverðu landinu í dag en suðvestan 5-13 m/s norðan- og norðvestanlands.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir enn fremur að hvassast verði á annesjum. Hiti verði 5 til 12 stig í dag.
Þá nálgast læg landið í kvöld. Með henni verði vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestanlands og þá þykkni upp og byrji að rigna í nótt.
Á morgun verði austan strekkingur og rigning eða súld með köflum, en lengst af hægari vindur og þurrt norðaustantil.