Margrét stefnir á fyrsta sætið

Margrét Friðriksdóttir
Margrét Friðriksdóttir

Margrét Friðriksdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 8. febrúar n.k.

Margrét er skólameistari Menntaskólans í Kópavogi og hefur gengt því starfi um 20 ára skeið, samkvæmt tilkynningu.

„Kópavogur hefur allt til að bera til að vera fyrirmynd annarra sveitafélaga ef rétt er staðið að stjórnun og rekstri bæjarfélagsins.  Kallað hefur verið eftir nýju fólki að því borði og jafnframt verið höfðað sérstaklega til kvenna í þeim efnum. Ég hef ákveðið að svara þessu kalli og gef kost á mér til að leiða sterkan, samhentan lista sjálfstæðismanna í Kópavogi til sveitarstjórnarkosninga í vor. Ég tel reynslu mína af stjórnun og þátttöku í félagsmálum getað þjónað hagsmunum Kópavogsbúa vel.

Margrét er með mastersgráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands, BA-gráðu í íslenskum fræðum og hefur langa reynslu af kennslu og stjórnun. Margét hefur verið virk í félags-  og menntamálum og var sæmd hinni íslensku fálkaorðu af forseta Íslands fyrir störf sín árið 2007.

Margrét var formaður Samtaka móðurmálskennara, formaður Skólameistarafélags Íslands og fulltrúi þeirra í Evrópusamtökum og Alþjóðasamtökum skólastjórnenda. Margrét  var stofnfélagi í Rótarýklúbbnum Borgir í Kópavogi árið 2000 og var forseti  klúbbsins 2003-2004. Þá var Margrét valin Umdæmisstjóri íslenska Rótarýumdæmisins 2010-2011 og situr enn í umdæmisráði, hún var sæmd Paul Harris orðu Rótarý 2011. Margrét er félagi í Delta, Kappa, Gamma, félagi kvenna í fræðslustörfum og situr og hefur setið í fjölmörgum nefndum á vegum stjórnvalda s.s. um nám í ferðaþjónustu, nám í hótel- og matvælagreinum, skipulag náms í framhaldsskólum, endurmenntun kennara, gæðastjórnun o.fl. Þá var Margrét heiðruð af Kópavogsbæ árið 2011 fyrir framlag til jafnréttismála.  Margrét er stjórnarformaður Fjölsmiðjunnar og situr í stjórn Iðnmenntar.

Margrét hefur verið búsett í Kópavogi á þriðja áratug. Hún er gift Eyvindi Albertssyni, endurskoðanda og eiga þau einn son  Bjarna Þór sem er læknir og búsettur í Edinborg. Hann er kvæntur Lindu Björk Hafþórsdóttur  og eiga þau fjögur börn,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert