Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar hefur einróma samþykkt tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí. Óðinn Pétur Vigfússon, sagnfræðingur og deildarstjóri, mun leiða framboðslistann. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Efstu sex sætin skipa:
1. Óðinn Pétur Vigfússon, sagnfræðingur og aðstoðarskólastjóri
2. Sandra Harðardóttir, sjúkraliði og laganemi
3. Rúnar Þór Haraldsson, framkvæmdastjóri
4. H. Valey Erlendsdóttir, BA í sálfræði
5. Sveinbjörn Ottesen, verkstjóri
6. Hrönn Kjartansdóttir, nemi
Heiðurssæti framboðslistans skipar Marteinn Magnússon, fyrrverandi bæjarfulltrúi. Í kosningum árið 2010 fékk flokkurinn engan bæjarfulltrúa kjörinn í bæjarstjórn. Mikill einhugur var á fundinum og stefnan sett hátt fyrir vorið.