Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir skipar fyrsta sætið á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík í sveitastjórnarkosningunum í maí. Þetta var tilkynnt á kjördæmisþingi Framsóknarmanna í Reykjavík í kvöld. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins.
Sveinbjörg Birna er formaður Landssambands framsóknarkvenna. Hún skipaði þriðja sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum.