Sigurður leiðir Bæjarlistann í Hafnarfirði

Sigurður P. Sigmundsson.
Sigurður P. Sigmundsson. Ljósmynd/Aðsend

Sigurður P. Sigmundsson skipar 1. sætið á framboðslista Bæjarlistans í Hafnarfirði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.

Sigurður P. er hagfræðingur að mennt og með meistaranám í stjórnun og stefnumótun.

Fram kemur í tilkynningu frá framboðinu að Sigurður hafi víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og hefur átt sæti í skipulags- og byggingarráði Hafnarfjarðar síðastliðin fjögur ár.

Þá hafi Sigurður P. mikla reynslu af rekstri, stjórnsýsluúttektum, vinnumarkaðsmálum, áætlanagerð og félagsstörfum af ýmsu tagi.

Hann var afreksmaður í langhlaupum á yngri árum og átti m.a. Íslandsmetið í maraþonhlaupi í 30 ár og er einn þekktasti hlaupaþjálfari landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert