Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er í áhugaverðu viðtali við Tómas Þór Þórðarson hjá Símanum Sport og mbl.is birtir nú fjórða og síðasta bútinn úr viðtalinu.
Þar er Gylfi spurður út í Andre Gomes, liðsfélaga sinn hjá Everton, sem fótbrotnaði illa í nóvember á síðasta ári. Gylfi hefur mikið álit á Gomes og viðurkennir að meiðsli hans minni hann á að vera þakklátur fyrir að vera meiðslalaus stærstan hluta ferilsins.
Þá var Gylfi spurður út í unglingsárin, en miðjumaðurinn fór til Reading þegar hann var aðeins 16 ára gamall og fór því aldrei í menntaskóla.
Þennan skemmtilega bút má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.