Liverpool tekur á móti Arsenal í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Anfield í Liverpool á mánudaginn kemur. Bæði lið hafa byrjað tímabilið af krafti og eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína.
Hafa leikir liðanna oft verið miklir markaleikir og glæsileg mörk litið dagsins ljós. Hér að neðan má sjá fimm stórglæsileg mörk úr leikjum Liverpool og Arsenal á Anfield.
Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.