Newcastle United og Leeds United gerðu 1:1 jafntefli á St. James Park í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í Newcastle í kvöld.
Raphinha kom Leeds yfir á 13. mínútu. Fékk boltann á hægri kantinum. Gaf inn á teiginn en enginn náði til boltans og hann hafnaði í fjærhorninu.
Allan Saint-Maximin jafnaði fyrir Newcastle á 44. mínútu. Gaf sér tíma innan teigs til að leggja boltann fyrir sig og skaut á réttu augnabliki. Boltinn hafnaði neðst í horninu.
Leikur Newcastle og Leeds var í beinni útsendingu á Síminn Sport.