Norðmaðurinn Martin Ødegaard skoraði sigurmark Arsenal í 1:0-sigri á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Arsenal hefur nú unnið tvo leiki í röð, 1:0, eftir þrjú töp í fyrstu þremur leikjunum.
Sigurmarkið og önnur tilþrif úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.