Stefna á að fjölga rafmagnsstrætisvögnum

Rafvæðing Strætó mun koma til með að minnka losun um …
Rafvæðing Strætó mun koma til með að minnka losun um 9.000 tonn CO2 ígilda. Ljósmynd/Strætó

Í dag rekur strætó 14 rafmagnsstrætisvagna sem hafa reynst vel, verið ódýrir í rekstri og krafist lítil viðhalds. Stefnir Strætó á að fjölga slíkum vögnum á næstu misserum og með því minnka losun CO2 ígilda um 9.000 tonn á ári á höfuðborgarsvæðinu, að því er greint frá í tilkynningu frá Veitum og Strætó.

„Það er ljóst að rafmagnsstrætisvögnum fylgir margvíslegur ávinningur, rekstrarlegur og umhverfislegur, en meðal hindrana í innleiðingu er uppbygging nauðsynlegra hleðsluinnviða og aðlögun leiðarkerfisins svo hægt sé að hlaða vagna á biðstöðvum, meðan vagnarnir eru í notkun,“ segir í tilkynningunni.

Rafveita Veitna vel búin til að rafvæða Strætó

Lítil þörf er á að styrkja dreifikerfi rafveitu Veitna vegna uppbyggingar hleðslukerfis Strætó á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt niðurstöðum greininga sem kynntar eru í nýútkominni skýrslu Veitna. Þar er einnig horft til heppilegra staðsetninga hleðslna með tilliti til leiðarkerfis Strætós og rafdreifikerfis Veitna. Því er rafveita Veitna vel búin til að rafvæða Strætó.

Strætó er með hleðsluaðstöðu við Hestháls með 750 kW afli og eina 150 kW hleðslustöð í Spönginni í Grafarvogi. Niðurstöður ofangreindrar skýrslu benda til þess að beinast liggur við að ráðast fyrst í uppbyggingu hleðsluinnviða í Mjódd þar sem aðstæður eru eins og þær verða bestar, bæði með tilliti til leiðarkerfis og dreifikerfis rafmagns.

Losun vegna vagna Strætó er árlega 4.460 tonn CO2 ígilda og gera má ráð fyrir að losun verktaka sem keyra fyrir Strætó sé svipuð. Með rafvæðingu strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu má gera ráð fyrir að minnka losun um 9.000 tonn CO2 ígilda á ári á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert