Sjáðu urriðaparið hrygna - Myndband

Stóri urriðinn er mættur í Öxará á Þingvöllum. Þar hefur löngum tíðkast að fara og fylgjast með ísaldarurriðanum undirbúa hrygningu og takast á um bestu svæðin og flottustu makana. Þórður Þórkelsson veiðimaður náði myndbandi af urriðapari að hrygna í vikunni. 

Myndbandið sýnir mjög vel hvernig parið fer að. Hrognin sjást í mölinni í skamma stund áður en hrygnan rótar yfir þau með öflugri sporðblöðkunni.

Þórður sem tók myndbandið sagði í samtali við Sporðaköst að sér hefði fundist magnað að sjá bæði hrognin og svilin. „Svilin eru eins og reykur umhverfis hrognin þar til straumurinn hefur tekið þau með sér. Þá fannst mér líka magnað að sjá að bæði hængurinn og hrygnan galopna munninn meðan að á frjóvguninni stendur,“ sagði Þórður.

En sjón er sögu ríkari.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert