„Þú verður að hugsa eins og fiskur“

Við Elliðavatn í morgun. Sumardagurinn fyrsti er opnunardagur vatnsins. Fjölmenni …
Við Elliðavatn í morgun. Sumardagurinn fyrsti er opnunardagur vatnsins. Fjölmenni tók fram vöðlur og veiðistangir. Ljósmynd/Sporðaköst

Veiðifólk á öllum aldri fagnaði sumri við Elliðavatn í morgun. Fjölmargir veiðimenn voru byrjaðir að veiða snemma í morgun og vegleg dagskrá var í boði á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur, Veiðikortsins og Veiðifélags Elliðavatns, í tilefni af opnun vatnsins.

Sérfræðingar voru mættir í bunkum og voru ósparir á ráðleggingar til yngri og óreyndari veiðimanna. Sporðaköst heyrðu á spjall tveggja veiðimanna. „Sástu eitthvað líf,“ spurði sá eldri. „Ég sá svona brúnar púpur í yfirborðinu,“ svaraði sá yngri. Örn Hjálmarsson hafði heyrt þetta og kom með innskot. „Þá er það Langskeggur sem gæti virkað.“ Svona var andrúmsloftið við Elliðavatnsbæinn. 

Morguninn byrjaði með stafalogni og hitastigið var komið í átta gráður þegar hafgolan mætti á sínum hefðbundna tíma rétt fyrir klukkan tíu. En þá voru einmitt Caddisbræður og Ólafur Tómas, kenndur við urriða, að gera sig klára í að halda örnámskeið um lífríkið og veiðina. Þessir sérfræðingar fjölluðu um hvernig hornsílin haga sér og sitthvað fleira. Fjölmenni hlustaði á þá félaga og var þétt setinn bekkurinn.

Ólafur Tómas undirbýr fyrirlestur um lífríkið. Sækir hér botnsýni úr …
Ólafur Tómas undirbýr fyrirlestur um lífríkið. Sækir hér botnsýni úr vatninu. Þær Helena Sól, Marey Ösp og Hugrún Viðja fylgjast með aðförunum. Ljósmynd/Sporðaköst

Þeir tóku þetta alla leið og áður en Óli fjallaði um hornsílin fór hann og tók ferskt sýni úr botni vatnsins til að setja í smásjá og sýna viðstöddum. Þeir þremenningar kalla sig Tökustuð. Það hafði þó ekki smitast yfir í silunginn í vatninu og það var lítið að gerast á meðan að Sporðaköst stöldruðu við og fylgdumst með veiðimönnum. „Þú verður að hugsa eins og fiskur,“ hvíslaði Örn Hjálmarsson. „Hann er að taka klakið á morgnana en svo kemur hafgolan og ýtir því í burtu. Svo þegar lægir með kvöldinu þá er aftur matartími.“

Hrafn Ágústsson, caddisbróðir og Ólafur Tómas ávörpuðu áhugasamt veiðifólk.
Hrafn Ágústsson, caddisbróðir og Ólafur Tómas ávörpuðu áhugasamt veiðifólk. Ljósmynd/Sporðaköst

Nokkrir veiðimenn voru komnir langt út í vatn. „Hvað með þessa? Þeir eru ekki að hugsa eins og fiskar,“ spurði ungur veiðimaður og benti. „Jú. Sjáðu til. Þeir eru að veiða með straumflugum.“

Svona var umræðan og margir mátuðu sig við fréttir frá öðrum. Árni Kristinn Skúlason var í Vífilsstaðavatni í gær og fékk þessa líka hlussu bleikju. „Nei. Ég mældi hana ekki en hún var mjög flott og ég bara var steinhissa hvað hún var stór. Hún tók Killer bug númer sextán.“

Jónas Magnússon var mættur í fullum herklæðum og var spenntur …
Jónas Magnússon var mættur í fullum herklæðum og var spenntur að byrja að veiða. Ljósmynd/Sporðaköst

Ingimundur Bergsson Veiðikortaforingi fékk að sjá myndina. „Já. Það eru oft stórar bleikjur og góð veiði í Vífilsstaðavatni. Það er vatnmetið af mörgum. Við höfum drónað yfir vatnið og það er fullt af flottri bleikju þarna.“

Árni Kristinn var rokinn að aðstoða tvær ungar konur við köst. Sem hann labbaði í burtu kallað hann, „Félagi minn fékk líka flotta bleikju í Brúará í gær. Ég skal senda þér mynd. Það var í landi Sels og hún tók Pheasant Tail númer fjórtán, bara stóra,“ hló hann og var farinn að sinna flugukastkennslu. Himbrimapar í ástarleik söng eða gólaði öllu heldur og var það enn einn bónusinn sem viðstaddir nutu þennan fyrsta veiðidag.

Eins og gengur þá fóru sumir lengra en aðrir.
Eins og gengur þá fóru sumir lengra en aðrir. Ljósmynd/Sporðaköst

Umgjörðin við Elliðavatn í morgun var til fyrirmyndar. Boðið var upp á kaffi og kleinur og einnig kleinuhringi sem er uppfærsla frá í fyrra. Þá er sérstaklega vert að hrósa þeim sem sér um malarveginn inn að Elliðavatni að hann var til fyrirmyndar. Undanfarin ár hefur þessi vegur verið eitt hryllings þvottabretti en nú var hann eins og best verður á kosið.

Árni Kristinn Skúlason, lengst til hægri aðstoðar veiðikonur við að …
Árni Kristinn Skúlason, lengst til hægri aðstoðar veiðikonur við að ná tökum á fluguköstum. Ljósmynd/Sporðaköst

Veiðin fór rólega af stað í vatninu en þó hafði frést af fiski sem var tekinn í Helluvatni og oft berast þessar fréttir nokkru síðar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka