Hópur manna sem kenna sig við verndun villta laxins hafa náð 42 strokulöxum í ám á Vestfjörðum í haust. Um nýliðna helgi náðu þeir 18 slíkum og plöstuðu og komu til Hafrannsóknastofnunar til greiningar.
Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson var með hópnum fyrir vestan um helgina og er þetta hans fimmta helgi í haust við leit að strokulöxum. „Eina helgin sem ég sleppti var þegar við vorum þrjú þúsund saman að mótmæla þessu á Austurvelli.“
Árnar sem þeir félagar fóru í um helgina voru Suðurfossá á Rauðasandi, Sunndalsá og Norðdalsá í Trostansfirði og Vatnsdalsá í Vatnsfirði. Afraksturinn var eins og fyrr segir átján strokulaxar.
„Það sem kom okkur á óvart var að fiskurinn í til dæmis Suðurfossá var búinn að taka mikinn lit og greinilega búinn að hanga þar lengi. Hrygnurnar voru orðnar vel þykkar. Fiskarnir sem við fengum í hinum ánum voru mun nýlegri og nokkrir úr Sunndalsá virtust vera glænýir. Alveg silfraðir með mjög laust hreistur,“ upplýsti Elías Pétur í samtali við Sporðaköst.
Hann telur að þeir hafi náð að hreinsa þrjár af þessum ám af eldislöxum nema þegar kemur að Vatnsdalsá í Vatnsfirði. Hún var mikil og bólgin og skilyrði erfið, sérstaklega á efri hluta árinnar þar sem hún er í gljúfrum. Þeir sáu í það minnsta einn strokulax sem þeir náðu ekki og skyggni var erfitt.
Aðspurður hvort þeir félagar ætli að halda áfram þessari iðju svaraði Elías Pétur. „Já. Á meðan að lög og veður leyfa munum við gera það. Það er því miður nóg eftir af þessum djöflum og allt of margar ár sem við komumst ekki í.“
Víðar hafa menn orðið varir við eldislaxa og Erling Ingvason birti í gær á Facebook síðu sinni myndband af haferni sem var að kljást við það sem Erling taldi vera eldislax, neðarlega í Hrútafjarðará. „Ég sá þetta eiginlega frá upphafi. Það var eins og örninn væri fastur í miðri ánni. En svo sá ég að hann var búinn að læsa klónum í bjartan fisk og dröslaði honum upp á eyri,“ sagði Erling í samtali við Sporðaköst. Hann sagði jafnframt að fiskurinn hefði verið silfraður og stór.
Afar líklegt verður að teljast að þetta hafi verið eldislax en í Hrútafjarðará og hliðaránni Síká er búið að fjarlægja 48 eldislaxa. Flesta þeirra tóku norsku kafararnir en þeir sáu eldislaxa sem þeir komust ekki að.
Nú velta margir fyrir sér hvert framhaldið verður. Vetur er að setjast að en engu líkara er en að aðgerðum sé lokið af hálfu yfirvalda. Heimillt er að veiða með stöng fram í nóvember til að reyna að ná þessum löxum. Það er hins vegar vitað að þeir taka illa. Engar skipulagðar aðgerðir eru í gangi sem Sporðaköst hafa vitneskju um. En allt útlit er fyrir að þessir strokulaxar séu enn að ganga í ár.
Viðræður hafa verið í gangi við norska kafara um að koma aftur. Veður og vatnavextir hafa hins vegar verið með þeim hætti að ekki hefur verið talin ástæða til að eyða fjármunum í að þeir komi. Sá möguleiki er þó enn uppi á borðum samkvæmt heimildum Sporðakasta.
Veitingastaðurinn Sushi Social stendur fyrir samstöðukvöldi á fimmtudagskvöld, 19. október til styrktar Icelandic Wildlife Fund. Eða eins og það er orðað af staðnum sjálfum. „...stöndum við fyrir samstöðukvöldi með baráttunni fyrir vernd íslenskra laxastofna.
Ágóðinn af kvöldin rennur óskiptur til Íslenska náttúruverndarsjóðsins og baráttunnar fyrir umhverfi og lífríkinu sem við þurfum öll að passa vel upp á.“
Á matseðli kvöldsins má finna lax en tekið er fram að hann upprunninn úr sjálfbæru og umhverfisvænu landeldi.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |