Við sögðum frá því á Matarvefnum á dögunum að kominn væri á markað nýr ostur sem kallast Grillostur. Minnir osturinn einna helst á Halloumi-ost sem ostaunnendur hafa miklar mætur á. Hér hefur Berglind Hreiðars á Gotteri.is útbúið grænmetisgrillspjót með Grillosti sem er vel þess virði að prófa.
Grillspjót með grænmeti og Grillosti
Grillspjót:
- 1 stk.Grillostur frá Gott í matinn
- 150 g sveppir
- 1 stk. rauðlaukur
- 1/2 stk. kúrbítur
- grillolía með hvítlauk
- ólífuolía
Jógúrtdressing:
- 200 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
- 2 msk. saxaður kóríander
- 1/2 stk. lime, safi og börkur
- 1 stk. hvítlauksrif, rifið
- salt og pipar
Aðferð:
- Skerið Grillost niður í sneiðar/bita sem eru um 1 cm á þykkt.
- Skerið rauðlauk og kúrbít niður.
- Raðið grænmeti og osti á spjót og penslið létt með ólífuolíu.
- Penslið næst þunnu lagi af grillolíu á spjótin og setjið á meðalheitt grillið.
- Grillið í um 3 mínútur á hvorri hlið og bætið grillolíu á eftir smekk.
Jógúrtdressing
- Blandið öllu saman í skál og berið fram með grillspjótunum.