Ljúffeng ommiletta með karmelliseruðum lauk

Girnileg ommiletta.
Girnileg ommiletta. Ljósmynd/Ragnar Freyr

„Þó að eiginkonan og táningurinn hafi verið á Íslandi um helgina hefur húsið okkar í Brighton ekki verið tómlegt. Óperinn okkar, Þórhildur, var með vinkonur sínar í heimsókn og við gerðum okkar besta við að bjóða þær velkomnar. Á fimmtudagin elduðum við saman spaghetti Bolognese, uppskrift má finna hérna, nema hvað ég gerði kúrbítsspaghetti fyrir sjálfan mig í stað hefðbundins pasta og svo var skellt í Steik og bernaise á föstudagskvöldið - sem er eins LKL vænn matur og hugsast getur. 

Í gærmorgun reis ég snemma á fætur (lítið annað hægt þegar ein þriggja ára vaknar í stuði) og var sólginn í reyktan lax. Úr varð þessi einfaldi réttur,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson, Læknirinn í eldhúsinu, í sínum nýjasta pistli. 

Ljúffeng ommiletta með karmelliseruðum lauk, fetaosti, kapers og reyktum laxi

Hráefnalisti

3 egg

salt og pipar

50 g feta ostur

1 lítill rauðlaukur

50 g smjör

75 g reyktur lax

nokkur kapers

1 msk. sýrður rjómi

1 tsk. fersk steinselja

Byrjið á því að sneiða laukinn niður í sneiðar og steikja í 30 g af smjöri við lágan hita í 20-30 mínútur þangað til að hann hefur fengið gullinn lit og ilmar dásamlega. Setjið til hliðar. 

Brjótið þrjú egg í skál, setjið eina teskeið af vatni, saltið og piprið og hrærið vandlega saman með gaffli. Bræðið smjör á pönnu og hellið eggjunum á pönnuna. 

Hristið pönnuna reglulega þannig að ommilettan sé laus frá köntunum. Með sleif ýtið við eggjunum inn að miðju og hallið svo pönnunni þannig eggjablandan renni yfir pönnuna. Með þessari aðferð byggir maður upp „volume“ í eggjakökunni.

Á meðan eggin eru ennþá blaut raðið niðursneiddum fetaosti yfir ásamt karmelliseraða lauknum. Lokið svo ommilettunni með því að brjóta upp á eggjakökuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert