Dröfn matarbloggar á eldhussogur.com gerir upp árið í skemmtilegri færslu á blogginu sínu. Þar fer hún yfir flutninga fjölskyldunnar, nýja fallega eldhúsið sem þau útbjuggu og síðast en ekki síst hægeldaða nautasteik. Með steikinni mælir Dröfn með sætum Hasselback-kartöflum en þær eru matreiddar eins og venjulega Hasselback-kartöflur.
„Mér finnst bearnaise-sósa ómissandi með nautalundinni og er með góða uppskrift að henni hér. Ég skal hins vegar líka benda ykkur á frábæra og einfalda leið til þess að verða ykkur út um góða bearnaise-sósu til að einfalda lífið. Bestu tilbúnu bernaisesósurnar fást hjá Hamborgarabúllunni og í Seljakjör á Seljabraut (sósa sem þau búa til sjálf), mæli með þeim!“
Hægelduð nautalund (f. ca. 4)
Ef nautalundin er frosin þá er hún látið þiðna í ísskáp í einn til tvo sólarhringa. Nokkrum tímum áður en kjötið er eldað er það tekið úr ísskáp, snyrt við þörfum og látið ná stofuhita.
Bakarofn hitaður í 60 gráður við undir- og yfirhita. 1 msk ólífuolía og 1 msk smjör er sett á pönnu og látið hitna vel. Þá er kjötið kryddað með pipar og steikt við háan hita í ca. 2 mínútur á öllum hliðum.
Því næst er það látið kólna í um það bil 5-10 mínútur. Bakarofn hitaður í 60 gráður við undir- og yfirhita. Nú er kjötinu vafið þétt inn í plastfilmu nokkra vafninga. Kjötmæli er stungið í kjötið (í gegnum plastið) og það sett inn í 60 gráðu heitan ofn í um það bil 3 ½ – 4 tíma eða þar til kjarnhiti kjötsins hefur náð 60 gráðum.
Þá er það tekið út úr ofninum, plastið tekið af og kjötið steikt örstutta stund upp úr smjöri og ólífuolíu á heitri pönnu á öllum hliðum, kryddað með salti og meiri pipar ef með þarf.
Að lokum er kjötið látið hvíla undir álpappír í minnst 15 mínútur áður en það er skorið niður. Óhætt er að láta kjötið bíða upp undir klukkustund undir álpappír og handklæði