Hið fullkomna Sesar-salat

Sósan verður að hylja hvert salatblað og því er mikilvægt …
Sósan verður að hylja hvert salatblað og því er mikilvægt að hræra henni vel saman við. Íris Ann Sigurðardóttir/mbl.is

„Ég hrein­lega elska gott Ses­ar-sal­at og ef ég sé það á mat­seðli er ég fljót að ákveða mig. Það sem borið er á borð er þó mjög mis­mun­andi eft­ir veit­inga­hús­um og jafn­vel er bætt við eggi eða bei­koni. Ég ákvað því fyr­ir nokkru að prófa mig áfram uns út­kom­an væri full­kom­in. Sal­atið er kannski ekki hollt en það er virki­lega djúsí og gott og ekta kósý-mat­ur á mínu heim­ili. Þetta sal­at er snilld í mat­ar­boði með góðu hvít­víns­glasi sem aðal­rétt­ur eða fyr­ir fleiri sem for­rétt­ur því mat­ar­boð þurfa ekki að vera flók­in eða taka lang­an tíma að elda mat­inn!,“ seg­ir Linda Björk Ingimars­dótt­ir mat­ar­blogg­ari. Hún skellti í þetta guðdóm­lega sal­at fyr­ir sér­blað Mata­vefs­ins um dag­inn en þetta er án efa besta Ses­ar-sal­at sem við á Mat­ar­vefn­um höf­um bragðað.

Hið fullkomna Sesar-salat

Vista Prenta

Fyr­ir 4-8

Inni­hald

1 snittu­brauð
ólífu­olía til að steikja
salt og pip­ar eft­ir smekk
600-700 g kjúk­linga­lund­ir eða 4 bring­ur
2-3 Romaine sal­at haus­ar fást í Hag­kaup, ef þeir eru ekki til er hægt að nota ice­berg eða kína­kál

Sós­an

2 hvít­lauksrif, pressuð
6 an­sjó­su­flök úr dós (ekki hata anjós­ur þær eru möst hér)
2 dl rif­inn par­mes­an-ost­ur
5 msk. gott maj­o­nes
5 msk. sýrður rjómi
2 msk. gott hvít­vín­se­dik

Merjið an­sjó­su­flök­in á bretti þar til þau eru orðin eins og mauk, setjið í skál. Blandið sam­an af­gangi af inni­halds­efn­um og hrærið vel sam­an og geymið í kæli.

Skerið brauðið í ten­inga og steikið á pönnu með olíu, salti og pip­ar. Best er að hafa miðlungs­hita og vera dug­leg að snúa brauðten­ing­un­um. Setjið til hliðar þegar þeir eru fal­lega gyllt­ir og leyfið að kólna.

Kryddið kjúk­ling­inn með upp­á­halds krydd­inu ykk­ar, ég nota kjúk­lingakryddið frá Nicolas Vahé. Grillið eða steikið kjúk­linga­bring­urn­ar eða lund­irn­ar þar til þær eru gegn­um­steikt­ar, setjið til hliðar.

Skerið sal­atið niður og setjið í skál, skerið kjúk­ling í bita og bætið sam­an við sal­atið. Hellið sós­unni yfir og hrærið vel sam­an (toss) svo sal­atið sé vel þakið af sós­unni. Setjið brauðten­inga yfir og stráið smá extra par­mes­an yfir.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert