Svava Gunnars, gourmet-grallari á ljufmeti.com, er með æði fyrir þessari ídýfu en hún er vinsælasta helgartrítið á hennar heimili enda sturlað góð.
Nutella-ídýfa – uppskrift frá Mitt Kök
Þeytið rjómann loftkenndan og léttan. Setjið rjómaost og flórsykur í aðra skál og hrærið saman. Hrærið Nutella saman við rjómaostinn. Hrærið að lokum þeytta rjómanum varlega saman við.
Setjið í skál og berið fram með ávöxtum, berjum og/eða banana.