Síðan að við fluttum heim til Íslands hef ég í tvígang farið út að borða á veitinahúsið Mat og drykk úti á Granda. Og í bæði skiptin hefur það verið sérlega ánægjulegt. Í fyrra skiptið fórum við hjónin með nokkrum evrópskum vinum okkar og átum okkur í gegnum ólíka mat- og vínseðla – allir voru himinlifandi – í fyrra skiptið át ég mig í gegnum sjávarréttamatseðilinn, í það síðara snæddi ég íslenska matseðilinn, og fékk þá að smakka hina rómuðu lúðusúpu þeirra í bæði skiptin.
Ég heyrði, reyndar sá, þessa súpu fyrst þegar ég var að horfa á þátt með Rick Stein, sem er breskur sjónvarpskokkur, þar sem hann var á ferð á Íslandi og heimsótti Mat og drykk og fékk sýnikennslu á því hvernig þessi súpa var elduð. Og ekki var hún sérlega flókin – en mjög skemmtilega útfærð.
Þannig að eftir að hafa smakkað og notið hennar í tvígang – var ekkert sem ætti að hindra að reyna sína eigin útgáfu – innblásna af kokkunum á Mat og drykk.
Ljúffenga lúðusúpan innblásin af Mat og drykk með basilolíu og sýrðum eplum
Þessi súpa er ekki gerð eftir þeirra uppskrift – heldur minni túlkun á því sem ég bragðaði hjá þeim.
- 1 gulur laukur
- 2 sellerístangir
- 2 gulrætur
- 3 hvítlauksrif
- 2 stjörnuanísar
- 2 lárviðarlauf
- handfylli af humarskeljum
- bein af 1 kg af þverskorinni lúðu
- 500 ml vatn
- 150 ml hvítvín
- 250 ml rjómi
- 500 g lúða
- 200 g rækjur
- 1 grænt epli
- 100 ml eplasíderedik
- 50 ml jómfrúarolía
- handfylli basil
- 200 g smjör
- 250 ml kjúklingasoð
- salt og pipar
Aðferð:
- Byrjið á því að undirbúa soðið. Það er ákaflega einfalt – flysjið og skerið lauk, gulrætur, sellerí og hvítlauk niður smátt og steikið í jómfrúarolíu eða smjöri – þangað til að grænmetið er orðið mjúkt. Bætið þá stjörnuanís, lárviðarlaufum saman við, ásamt handfylli af humarskeljum (sé það fyrir hendi). Skerið næst lúðuna niður – þannig að þið aðskiljið kjötið frá beinunum. Bætið beinunum saman við grænmetið.
- Steikið um stund og bætið svo hvítvíni saman við og sjóðið áfengið upp. Bætið svo vatninu við og sjóðið í 30 mínútur. Ekki þarf að sjóða fiskisoðið lengur en þetta. Það verður ekki betra fyrir vikið.
- Síið soðið í gegnum sigtið, hellið svo rjóma saman við og sjóðið upp. Smakkið til með salti, pipar og jafnvel krafti eins og við á.
- Næst er að huga að öðrum hlutum súpunnar. Takið handfylli af fersku basil og setjið í glas.
- Bætið svo jómfrúarolíu við ferska basilið – og tætið með hakkara þannig að basilið blandist vel saman við olíuna.
- Næst er að huga að eplunum. Flysjið þau og skerið í litla bita og setjið í skál og hellið heitu eplasíderediki yfir og látið standa í 15 mínútur.
- Raðið nokkrum rækjum í súpuskál og nokkrum eplum í kring.
- Skerið því næst lúðuna í munnbitastóra bita. Bræðið smjörið í potti og hellið svo heitu kjúkingasoði út í. Hrærið saman. Sjóðið svo lúðubitana í smjörinu og kjúklingasoðinu í tvær til þrjár mínútur.
- Tyllið svo lúðubitunum í hverja skál.
- Svo er ekkert annað að gera en að hella heitri súpunni yfir ferskar rækjurnar, lúðuna og eplin – og sáldra nokkrum dropum af basilolíunni yfir, skreyta með fersku basil – og þá – og þá er komin veisla.
Bon appetit!
Hér má sjá leiðbeiningar frá Ragnari.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Lúðan komin á diskinn.
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson