Það skiptir máli að byrja daginn rétt og flestir myndu sjálfsagt taka undir að það væri glapræði að byrja daginn á nautasteik eða snakkpoka. Þessi hristingur er sérdeilis einfaldur en syndsamlega bragðgóður og það sem betra er... hann gerir daginn betri því manni líður svo vel í kroppnum eftir að hafa drukkið hann.
Það er Jennifer Berg sem á heiðurinn að þessari dásemd og það er sama hvað hún tekur sér fyrir hendur – hún gerir það vel. Sjálf segist hún elska avókadó og að þessi hristingur minni um margt á uppáhaldshristinginn hennar sem fáist á Joe and the Juice. Hún hafi fikrað sig áfram og sé virkilega sátt við útkomuna sem að öllum líkindum sé jafnvell hollari en fyrirmyndin.
Fyrir þá sem vilja lesa meira af snilldaruppskriftum Jennifer er hægt að fylgjast með henni inni á Trendnet og á Jen´s Delicious Life.
Morgunhristingurinn sem gerir daginn betri
Aðferð:
Setjið í blandara og blandið uns tilbúið.