Júlía markþjálfi hefur breytt lífi fjölda manns með ráðleggingum sínum um matarræði og lífstíl. Þessa dagana fer Júlía að hefja fjögurra mánaða þjálfun sem ber neitið Nýtt líf - ný þú Nýtt líf og Ný þú þjálfun þar sem hún hjálpar fólki sem á annríkt að breyta um lífsstíl til hins betra og fá meiri orku. Segir hún lykilinn í breyttum lífsstíl vera að taka aðeins skref fyrir skref og passa að mataræðið sé fljótlegt og seðji bragðlaukana. Geta áhugasamir sótt upplýsingar um námskeið Júlíu og lært um helstu fæðu sem hún mælir með fyrir meiri orku og minni sykurlöngun ásamt uppskriftum í ókeypis leiðarvísi sem hægt er að nálgast hér.
Um þessa girnilegu uppskrift segir Júlía:
„Um daginn fékk ég svo svakalega löngun í burger og kokteilsósu að ég ákvað ég að gera smá tilraun og bjó til holla „kokteilsósu“. Ég verð bara að segja að ég varð sko ekki svikin! Fyrir bestu útkomuna reynið að velja breið og flott eggaldin! Hann er sannarlega rausnarlegur og eitthvað sem allir sælkerar kunna vel að meta.“
Djúsí vegan burger með „kokteilsósu“ og sætkartöflufrönskum
Egggaldin (brauðið)
1 tsk. Eðalkrydd frá pottagöldum
1 tsk. ólífuolía
2-4 sveppir (kjötið)
1 tsk. balsamik-edik
1 tsk. ólífuolía
1/2 tsk. hlynsíróp/kókospálmanektar
1 tómatsneið
rauðlaukur skorinn í hringi
rauð papríka, skorin í strimla
„Kokteilsósa“
2 msk. lífræn tómatsósa
2 msk. kasjúhnetudressing frá Lifðu til fulls bókinni eða vegan-majóness
örlítið chillimauk (val)
Sætkartöflu- og nípufranskar
1 sæt kartafla
1 nípa
1 tsk. reykt paprikukrydd
1 tsk. Eðalkrydd frá pottagöldum
Aðferð:
Hitið grillið.Mér þykir best að borða borgarann með hníf og gaffli en þar sem eggaldin molnar síður eins og venjulegt brauð má alveg borða hann eins og hefðbundinn borgara!