Eplakökur eru eitt af þessum litlu atriðum lífsins sem skipta hreinlega miklu máli. Þið kannski áttið ykkur ekki á því fyrr en sá dagur rennur upp að þið smakkið vonda eplaköku. Það hefur nefnilega gerst og er ekki góð tilfinning. Þeim mun mikilvægara er fólk eins og matarbloggarinn Hanna sem á heiðurinn af þessari gamaldags og góðu eplakökuuppskrift en því skal haldið vandlega til haga að það er gamaldags gæðastimpill sem þýðir að uppskriftin eða aðferðin hefur staðist tímans tönn með glans. Hanna segir reyndar að Bára nokkur eigi heiðurinn en við gefum þeim báðum kredit og þökkum fyrir okkur.
Gamaldags uppskriftir eru líka nauðsynlegar vegna nostalgíunnar sem þær vekja og minninganna sem vakna við það eitt að finna lyktina. En nóg um það og hér er komið að uppskriftinni en enn ítarlegri leiðbeiningar í myndformi er hægt að fá á matarblogginu hennar Hönnu – hanna.is.
Aðferð:
Meðlæti
Borið fram með þeyttum rjóma eða ís.
Geymsla
Kökuna þarf ekki að geyma í kæli – hún má gjarnan standa úti með lok yfir.