Hún Sæunn hjá Hugmyndiraðhollustu.is deilir hér guðdómlegri uppskrift að hátíðar-wellington sem jafnframt er vegan. Hún segist þróa nýja hátíðaruppskrift fyrir hver jól og þetta árið varð wellington fyrir valinu. Hún segir réttinn bragðgóðan, hátíðlegan en umfram allt auðveldan í framkvæmd.
Innbakað Hátíðar-Oumph!
Steikin:
- 1 box sveppir
- 2-6 stk. skalottlaukar (fer eftir stærð, ca. 60 grömm)
- 6 hvítlauksrif
- Dass af tamari- eða sojasósu
- 1 teningur sveppakraftur
- 3-4 plötur af smjördeigi
- 1 poki Oumph! thyme & garlic
- 150 gr. soðnar kartöflur
- 1 tsk. hvítlauksmauk
- Salt og pipar
Sósan:
- 1 stk. laukur
- 2-3 hvítlauksrif
- 1 box sveppir
- 2-3 Rapunzel-grænmetisteningar
- 1 dós kókosmjólk
- 2-3 msk. hveiti eða annað mjöl
- 1-2 cl Bristol Cream-sérrý
- Svartur pipar
Músin:
- 600 g sæt kartafla
- 3-4 dl sykurlaus möndlumjólk
- 1⁄2 tsk. salt
- 1⁄2 tsk. múskat
Aðferð:
Steikin:
- Taktu smjördeig og Oumph! úr frysti a.m.k. klukkutíma fyrir matargerðina.
- Saxaðu sveppi, lauk og hvítlauk og settu á pönnu ásamt örlitlu vatni. Stilltu á háan hita og hrærðu vel í á meðan sveppirnir gefa frá sér vökva. Bættu sveppakrafti og sojasósu á pönnuna og láttu krauma vel þar til allur vökvi er gufaður upp og blandan orðin vel þurr.
- Smakkaðu til með salti og pipar, taktu af pönnunni og láttu kólna.
- Steiktu Oumph við ríflegan meðalhita á þurri pönnu, hrærðu vel í á meðan svo það brenni ekki. Markmiðið er að losa það við sem mestan vökva og fá létta steikingaráferð á það. Taktu svo til hliðar og láttu kólna.
- Stappaðu kartöflur gróflega saman við hvítlauksmaukið, geymdu til hliðar.
- Ef tíminn er nægur er gott að geyma allt í ísskáp í 1-2 klukkutíma áður en haldið er áfram. Það auðveldar samsetninguna og innpökkunina.
- Stráðu örlitlu hveiti á borð, leggðu smjördeigsplöturnar ofan á hveitið og láttu skammhliðarnar skarast örlítið. Þrýstu plötunum saman og rúllaðu þær út með kökukefli í stóran ferhyrning.
- Dreifðu stöppuðu kartöflunum langsum eftir deiginu miðju. Skildu eftir nægilega mikið autt deig allan hringinn til að geta vafið því saman í lokin.
- Dreifðu sveppablöndunni yfir kartöflurnar, þrýstu létt niður og svo Oumphinu í lokin.
- Lokaðu deiginu eftir endilöngu og brjóttu endana saman. Veltu svo steikinni yfir á bökunarpappír með samskeytin niður. Skerðu nokkrar línur í yfirborðið.
- Láttu bakast í ofni við 180°C í 30-40 mínútur eða þar til smjördeigið er orðið gullbrúnt.
Sósan:
- Saxaðu lauk og hvítlauk og settu í þykkbotna pott ásamt smá skvettu af vatni. Stilltu á ríflegan meðalhita og láttu mýkjast í nokkrar mínútur eða þar til laukurinn er orðinn nokkuð glær.
- Grófsaxaðu sveppina og bættu út í pottinn, hitaðu í botn og láttu sveppina dökkna vel.
- Bættu kókosmjólk og grænmetisteningum út í og láttu suðuna koma upp.
- Hristu hveiti saman við ca. 1/2 dl af vatni og helltu í mjórri bunu út í sjóðandi súpuna, hrærðu vel á meðan.
- Smakkaðu til með svörtum, nýmöluðum pipar og smá skvettu af sérrý.
Músin:
- Skerðu kartöfluna í teninga og settu í víðan pott eða pönnu ásamt möndlumjólkinni og kryddinu.
- Láttu sjóða við miðlungshita þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar í gegn og stappast mjög auðveldlega.
- Settu allt saman í matvinnsluvél (ef hún þolir hitann) eða maukaðu með töfrasprota.