Þjálfarinn og gleðibomban Anna Eiríksdóttir opnaði nýverið heimasíðuna annaeiriks.is þar sem hún deilir fróðleik og uppskriftum til að aðstoða fólk við hollara og heilnæmara líferni. Anna fagnaði á dögunum 40 ára afmæli sínu en gefur ekkert eftir í mataræðinu og æfingunum og hefur sjaldan eða aldrei litið betur út.
„Ég er mjög hrifin af því að útbúa nesti og taka með mér í vinnuna því með því að skipuleggja daginn fyrir fram er auðveldara að halda mataræðinu góðu. Mexíkósalat geri ég þegar ég er með taco eða burrito í kvöldmatinn og þá skelli ég í leiðinni í eina krukku sem ég gæði mér á daginn eftir,“ segir Anna sem þekktust er fyrir hin geysivinsælu námskeið Eðalþjálfun í Hreyfingu.
Mexíkókrukka Önnu Eiríks
Í þeirri röð sem ég raða í krukkuna
1/2 dl salsasósa í botninn
1 dl hakk kryddað með burrito- eða taco-kryddi
1 dl grjón
Niðurskorin gúrka
Niðurskorin paprika
1/2 lárpera skorin
1 lúka spínat
Kirsuberjatómatar (eða bara venjulegur tómatur)
Aðferð:
Öllu hellt úr krukkunni í góða skál og borðað með bestu lyst!