„Þessi var langvinsælust á síðastliðnu ári enda klassísk og klikkar ekki,“ segir Ragnar Freyr Ingvason, læknir og matgæðingur, sem deilir hér með okkur vinsælustu uppskrift sinni árið 2017.
„Ljúffengar lambakótilettur í kryddraspi, með fullkomnum gulrótum og kartöflum, grænum baunum og rjómalagaðri sveppasósu. Það er erfitt að færa rök fyrir því að þessi máltíð sé beinlínis holl – en eitt er víst – hún er einstaklega góð!“
Fyrir 6-8
Fyrir lambakótiletturnar
Heill hryggur í 1,5 cm sneiðum
2 bollar ferskur brauðraspur
4 egg
3 greinar af rósmarín
blóðbergssalt og pipar
smjör til steikingar
Fyrir sósuna
250 g sveppir
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 glas rauðvín
500 ml lambasoð
250 ml rjómi
3 lárviðarlauf
salt og pipar
Meðlæti
1 kg kartöflur
1/2 kg gulrætur
handfylli hveiti
salt og pipar
1/2 kg frosnar grænar baunir
750 ml kjúklingasoð
50 g smjör
salt og pipar
Að gera sinn eigin rasp er eiginlega alveg borðliggjandi. Bara að láta brauð sem er afgangs þorna í viskastykki og mala síðan niður í matvinnsluvél og geyma í krukku þangað til að hans er þörf.
Saxið rósmarínið vandlega niður. Blandið rósmaríninu, blóðbergssaltinu og pipar vandlega saman við raspið.
Brjótið eggin í ílát, bragðbætið með blóðbergssalti og pipar – það er mikilvægt að bragðbæta bæði eggin og raspið. Ef þið mynduð einnig nota hveiti (sem fyrsta lag) ætti einnig að bragðbæta það.
Hvílið kótiletturnar í nokkrar mínútur til að tryggja að raspurinn sitji sem fastast.
Þegar smjörið er bráðnað, og hefur þagnað, eru lambakótiletturnar settar á pönnuna og steiktar í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Það er best að hafa bara miðlungshita undir – annars er hætta á því að raspurinn brenni – og hver vill það?
Eins og með allt kjöt þarf það að fá að hvíla í nokkrar mínútur áður en maður gæðir sér á því.
Svona gerir maður fullkomnar ofnsteiktar kartöflur og gulrætur: Flysja kartöflur og gulrætur. Forsjóða í söltuðu vatni í 6 mínútur. Hella kartöflum í sigti og hrista til að ýfa upp yfirborðið. Bæta við einni matskeið af hveiti og hrista saman. Steikja upp úr fitu að eigin vali. Ofnsteikja við 180-200 gráður þangað til gullinbrúnar og fallegar. Svo er bara að njóta hinnar fullkomnu ofnsteiktu kartöflu.
Sósan er einföld – en tekur smá tíma. Fyrst er að bræða smjör í potti og steikja við lágan hita; lauk, hvítlauk, sveppi þangað til að þeir karmelliserast (tekur um 20 mínútur, jafnvel lengur). Gætið að því að salta og pipra og setja lárviðarlaufið með. Þvínæst er víninu hellt á pönnuna og hún "deglazed" (að "deglaza" pönnuna er þegar vökvi fer á heita pönnuna (eða pottinn) og allt það sem festist við botninn leysist upp – það gefur sósunni bragðið/kraftinn) – og svo er áfengið soðið upp. Þá bætir maður lambasoðinu við og síður niður um þriðjung. Að lokum er rjómanum bætt saman við og soðið aftur niður um þriðjung. Smakkað til með salti, pipar og jafnvel sultu ef þarf.
Baunirnar eru einfaldar; kjúklingasoð hitað í potti og frosnar baunirnar hitaðar í gegn í nokkrar mínútur. Vatninu hellt frá og smjörinu hrært saman við. Voila!
Svo er bara að raða þessu á disk. Og ekki gleyma sósunni – hún er punkturinn yfir i-ið.