Matarbloggið hennar Hönnu Þóru er með þeim flottari hér á landi og undirrituð er formlegur aðdáandi. Hér býður Hanna upp á eggjahræru með reyktum laxi og kapersmajónesi sem ég get ekki beðið eftir að prófa. Í mínum huga er þetta hinn fullkomni helgarmorgunverður eða dögurður sé út í það farið.
Síðu Hönnu Þóru má nálgast hér.
Eggjahræra með reyktum laxi og kapersmajónesi
- 5 – 6 egg
- 2 – 3 msk. undanrenna eða mjólk
- Ögn af smjöri
- 2 msk. graslaukur – saxaður
- Saltflögur
- Pipar
- 100 – 120 g reyktur lax – skorinn í litla bita
- 1 – 1½ dl gúrka – kjarnhreinsuð og söxuð
- 1 – 1½ msk saxaður skarlottulaukur eða laukur
- 1 msk. graslaukur – saxaður
- ½ tsk. sítrónubörkur – rifinn fínt
Sósa
- ½ dl majónes
- ½ dl sýrður rjómi
- 2 msk. kapers – saxað fínt
Aðferð:
- Egg, mjólk, graslaukur og salt – pískað saman
- Smjörið brætt og eggjablandan steikt á pönnunni – hrært í
- Lauk, gúrku, graslauk og laxi blandað saman í skál – dreift yfir eggjahræruna þegar hún er bökuð.
- Allt hráefni hrært saman. Sósan sett á miðja eggjahræruna – ofan á laxahræruna. Einnig er gott að bera sósuna fram í skál með eggjahrærunni.