Meistari Albert Eiríksson segir að fyrsti maturinn sem hafi verið eldaður á heimilinu eftir að stórhátíðarofátinu lauk hafi verið þetta spínat-lasagna. Hann segir að auðvelt sé að breyta réttinum í vegan-rétt með því að sleppa ostinum ofan á og hafa einungis kókosmjöl.
Hann er uppfullur af góðum ráðum og segir að með þessu spínat-lasagna sé upplagt að bera fram gott salat. Einnig sé gott að setja hvítlauks- eða chili-olíu yfir áður en formið er sett á borðið.
Spínatlasagna
- 1 bolli góð matarolía
- 1 stór laukur
- 4-5 hvítlauksgeirar
- 500 g kartöflur
- 3-400 g sætar kartöflur
- 600 g frosið spínat
- 1½ msk. cummin
- 1 tsk. múskat
- 1 tsk. kóríander
- salt og pipar
- smá chili
- lasagna-plötur
- kókosmjöl
- rifinn ostur
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar en kælið þær ekki. Saxið laukinn og steikið í olíunni ásamt hvítlauk. Setjið frosið spínat saman við. Grófmerjið kartöflurnar og látið út í. Kryddið með múskati, cummin, salti, pipar, chili og blandið vel saman. Spínatið á að þiðna alveg í pottinum og losna í sundur.
- Afhýðið sætu kartöflurnar og skerið í þunnar sneiðar.
- Setjið í eldfast form með lasagne-plötum og sætu kartöflunum á milli. Dreifið kókosmjöli og rifnum osti yfir og bakið í um 40 mín. á 150°C