Rétturinn sem börnin elska!

Hinn fullkomni fjölskylduréttur.
Hinn fullkomni fjölskylduréttur. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

„Það hrósuðu all­ir matn­um,“ sagði Berg­lind Guðmunds­dótt­ir, mat­ar­blogg­ari á Gul­ur, rauður, grænn og salt, um þenn­an dá­semd­ar­rétt sem virðist falla í kramið hjá öll­um ald­urs­hóp­um. Og meira biðjum við ekki um.

Rétturinn sem börnin elska!

Vista Prenta

Taco pasta
Fyr­ir 4-6

  • 1-2 msk. ólífu­olía
  • 1 lauk­ur, saxaður
  • 2-3 hvít­lauksrif, söxuð
  • 500 g nauta­hakk
  • 1 poki (4-5 msk.) tacokrydd
  • 1 dós (400 g) tóm­at­ar, saxaðir eða maukaðir
  • 2 msk. tóm­at­púrra
  • 7 dl vatn
  • 400 g far­falle pasta
  • rif­inn mozzar­ella
  • nachos

Aðferð:

  1. Steikið lauk og hvít­lauk í olíu í stór­um potti. Bætið nauta­hakk­inu sam­an við og steikið.
  2. Setjið tacokryddið sam­an við ásamt tómöt­um, tóm­at­púrru og vatni. Kryddið með salti og pip­ar.
  3. Setjið lok á pott­inn og látið malla við væg­an hita í 20 mín­út­ur.
  4. Bætið past­anu út í og sjóðið þar til pastað er til­búið. Bætið við vatni ef þörf er á.
  5. Setjið í skál­ar og toppið með rifn­um mozzar­ella­osti og muldu nachos.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert