Nakta gulrótarkakan

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Nú halda máski margir að þessi fyrirsögn sé grín en svo er alls ekki. Naktar kökur er ákveðinn stíll þar sem einungis er sett þunnt lag af kremi á kökuna þannig að yfirbragð hennar verður... tja... hrárra og öðruvísi.

Þessi stíll hefur slegið í gegn og hér gefur að líta nakta gulrótarköku úr smiðju Berglindar Hreiðarsdóttur á Gotterí.is sem hún bakaði í tilefni af 40 afmæli eiginmannsins.

Virkilega vel heppnuð og ef Berglind er söm við sig þá bragðast hún líka stórkostlega.

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Nakta gulrótarkakan

Hér er á ferðinni Betty-gulrótarkaka með vanillusmjörkremi á milli, skreytt með hvítu Betty vanilla frosting að utan (til að fá alveg hvítt) og ferskum blómum. Það voru dásamlega fallegar antikbleikar nellikur í Blómavali þennan daginn svo ég fór frá því að kaupa rósir og yfir í þær.

Kaka

  • 1 x Betty Crocker-gulrótarkökublanda

Aðferð:

  1. Blandið kökumixinu samkvæmt leiðbeiningum á pakka og skiptið í 3 x 15 cm stór kökuform og kælið botnana.
  2. Skerið ofan af hverjum botni það sem þarf til þess að þeir verði vel sléttir og staflist betur.

Krem

  • 125 gr. smjör (við stofuhita)
  • 400 gr. flórsykur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. síróp (pönnukökusíróp)

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin nema flórsykur í hrærivélarskálina og hrærið vel saman. Bætið þá flórsykri saman við í litlum skömmtum, skafið niður á milli og hrærið þar til slétt og fallegt.
  2. Smyrjið góðu lagi af kremi á milli botnanna (2 lög) og þunnu lagi á toppinn til að binda alla kökumylsnu þar.

Skreyting

  • 1 dós Betty Crocker Vanilla Frosting
  • 125 gr. flórsykur
  • Fersk blóm að eigin vali

Aðferð

  1. Blandið saman Betty frosting og flórsykri.
  2. Smyrjið þunnu lagi utan um alla kökuna og yfir vanillukremið á toppnum. Þið viljið fá þekjandi og fallega áferð á toppinn en skafa vel af hliðunum svo það sjáist í hliðarnar á kökunni.
  3. Klippið blóm til, plastið endana og stingið í kökuna.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert