Matarvefurinn fékk kryddsérfræðinginn Auði Rafnsdóttur til að deila einni af sinni uppáhaldsgrilluppskriftum sem hún eldar gjarnan eftir handa vinkonunum.
„Að þessu sinni ákváðum við vinkonurnar að grilla T-bone-steikur og risarækjur. Surf & Turf-matseðillinn varð vinsæll í Bandaríkjunum upp úr 1960, um er að ræða matseðil með bæði fisk- og kjötmeti.“
T-bone-steik
Sirka 200 g á mann. „Það er ekkert stórkostlegra en að komast yfir flottar og þykkar T-bone-steikur, en það er lund og fillet á beini, mjög bragðmikil steik.“
Aðferð:
- Steikurnar voru teknar úr ísskáp 3 klst. fyrir eldun og leyft að ná stofuhita, penslaðar klst. fyrir eldun með trufflu marineringu frá kjötbúðinni á Grensási og grillaðar við háan hita í 2,5 mínútur og síðan snúið í 90 gráður til að fá krossgrillröndina og áfram í 2,5 mínútur og endurtekið á hinni hliðinni sem gerði 55° kjarnhita eða medium rare.
- Að því loknu voru steikurnar teknar af grillinu, álpappír settur yfir og þær látnar standa í 15 mínútur.
- Athugið að grilltíminn ræðst nokkuð af því hversu heitt grillið verður, hversu þykkar steikurnar eru og hvernig þið viljið þær steiktar.
Marineraðar risarækjur, grænmeti og salat:
- 20-30 risarækjur
- 2 hausar Romain-salat, gróft skorið (hægt að nota hvaða salat sem er)
- 20 litlir tómatar, skornir til helminga
- 1 appelsínugul paprika, gróft skorin
- 1 rauðlaukur, gróft skorinn
- 5 gulrætur, gróft skornar
- 10 stk. aspas, gróft skorinn
Marinering:
- 3 dl. kryddjurtaolía (eða hvaða olía sem er)
- ½ lime, safinn
- 1 dl. ferskt oregano, smátt saxað
- 1 msk. hunang
- 2 tsk. grillkrydd frá Krydd- og tehúsinusalt
- pipar
Aðferð:
- Bæði rækjur og grænmeti er marinerað í klukkutíma.
- Grænmetið, allt nema salatið er eldað í ofni í ca. 15 mínútur og svo látið kólna.
- Rækjurnar eru eldaðar í ofni í ca. 5-8 mínútur og svo látnar kólna.
- Öllu er blandað vel saman í stóra skál og afganginum af marineringu helt yfir eftir smekk.
Chimichurri-sósa : Salsa frá Argentínu og Uruguay.
Lausleg þýðing: „a mixture of several things in no particular order“
Margir setja allt í mixer og blanda þannig öllum hráefnunum saman.. Það gerir maður ekki með Chimichurri.
Allt hráefnið í Chimichurri er saxað smátt niður með beittum hníf með ást og umhyggju, sett í skál, hrært saman og látið standa við stofuhita – það er þá sem töfrarnir gerast.
Chimichurri fyrir 2-4
- 1 búnt steinselja – skera af mest af stönglinum
- 4-8 greinar ferskt oregano – hreinsa blöðin af stönglinum
- 4-8 hvítlauksgeirar
- ¾ bollar ólívuolía
- ¼ bolli rauðvínsedik
- 1 sítróna, safinn
- 1-2 msk. skalottlaukur eða rauðlaukur
- 1 tsk. þurrkað oregano
- 1 tsk. svartur pipar
- ½ tsk. maldon-salt
- ½-1 msk. hunang eða agave-síróp eftir smekk
- ½ til 1 tsk. mulinn chilli – lítill þurrkaður chilli sem keyptur er í Asíubúð, settur heill í matvinnsluvél og saxaður í smátt – þá færðu alvöru eld á varirnar (annað er ekki chilli).
Chimichurri þarf að standa í allavega 8 klukkutíma til að brotna niður. Það má smakka sig áfram, dash af salti, svörtum pipar eða sætu.
Ef hún stendur yfir nótt að láta hana þá standa í ísskáp.
Ferskt og fallegt hráefni í salatið.
mbl.is/ Haraldur Jónasson/Hari
Eftir að rækjurnar og grænmetið hefur kólnað er því blandað saman.
mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Steikin er svo skorin lekkert á disk og borin fram með salatinu.
mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Diskarnir sumarlegu eru frá Indisku í Kringlunni.
mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari