Ostaköku bananabrauð

Girnilegt ostakökubrauð tryllir kaffitíman hjá þeim sem hugsa út fyrir …
Girnilegt ostakökubrauð tryllir kaffitíman hjá þeim sem hugsa út fyrir kassann. mbl.is/Kristinn Magnússon

Linda Björk Ingimars­dótt­ir mat­gæðing­ur Mat­ar­vefs­ins mæl­ir að unn­end­ur ban­ana­brauðs leyfi sér að hugsa ör­lítið út fyr­ir kass­ann og prófi þetta magnaða osta­kökuban­ana­brauð. 

„Ég hrein­lega elska gott ban­ana­brauð og einnig osta­kök­ur og ég geri oft ban­ana­möff­ins með osta­köku­fyll­ingu og einn dag­inn varð til þessi blanda þar sem ég átti aðeins fleiri ban­ana og langaði meira í ban­ana­brauð en möff­ins og einnig að prufa eitt­hvað nýtt. Mér finnst best að borða það volgt með góðu kaffi og kannski smá vanilluís en það er einnig gott þegar það hef­ur kólnað. Þegar veðrið er eins og það hef­ur verið er ekk­ert betra en að baka og njóta inni í hlýj­unni með fjöl­skyld­unni," seg­ir Linda Björk. 

Ostaköku bananabrauð

Vista Prenta

Osta­köku ban­ana­brauð

Brauð:
1 stórt egg
½ bolli púður­syk­ur
¼  bolli syk­ur
¼ bolli fljót­andi kó­kosol­ía eða jurta­ol­ía
¼ bolli grísk jóg­úrt en sýrður rjómi virk­ar einnig may be su­bstitu­ted)
2 tsk vanilla drop­ar
2 maukaðir velþroskaðir ban­an­ar 
1 bolli hveiti
½ tsk mat­ar­sódi
½ tsk lyfti­duft
klipa af salti

Osta­köku­fyll­ing:

1 stórt egg
220 gr mjúk­ur rjóma­ost­ur, best ef hann er við stofu­hita
¼ bolli syk­ur
3 msk hveiti

Hitið ofn­inn í 180 gráður

Pennslið brauðform og dustið það með hveiti og setjið til hliðar

Í stóra skál blandið sam­an eggi, sykri, kó­kosol­íu, grísku jóg­úrt­ina, vanillu drop­um og pískið vel sam­an með handþeyt­ara.

Bætið bön­un­um sam­an við og blandið ró­lega sam­an

Setjið sam­an við blönd­una hveiti, mat­ar­sóda og lyfti­duft og ör­lítið af salti og blandið sam­an með sleif ró­lega, ekki blanda of mikið sam­an og setjið til hliðar

Í skál setjið þið allt hrá­efni fyr­ir osta­köku­fyll­ing­una og blandið sam­an með písk eða handþeyt­ara

Setjið 2/​3 af ban­ana­deig­inu í formið og sléttið úr með sleif, hellið osta­köku­blönd­unni yfir og slettið aft­ur svo er rest af ban­ana­blönd­unni hellt yfir

Bakið í ofni í 45-50 mín­út­ur og leyfið að standa og kólna í 15 mín­út­ur eða  þar til hægt er að njóta.

Linda Björk á gott safn uppskriftabóka sem fylla hana innblæstri.
Linda Björk á gott safn upp­skrifta­bóka sem fylla hana inn­blæstri. mbl.is/Í​ris Ann Sig­urðardótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert