Pavlóvur eru merkilegt fyrirbæri og sögufrægar með eindæmum enda skírðar í höfuðið á hinni stórkostlegu ballerínu Önnu Pavlovu. Hér gefur að líta sjúklega girnilega útgáfu frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is. Hún notar Snickers í bland við rjóma og toppar svo með karmellu.
Skothelt og gómsætt eins og Berglindar er von og vísa.
Púðursykurs-pavlóva með Snickers
- 5 eggjahvítur
- 5 dl púðursykur
- 500 ml rjómi
- 2 Snickers
Aðferð:
- Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja að freyða og bætið þá sykrinum saman við í nokkrum skömmtum.
- Stífþeytið þar til topparnir halda sér og sprautið á bökunarplötu (eða setjið á með tveimur matskeiðum), búið til smá holu í miðjunni með skeið til að betra sé að sprauta rjómanum á eftir bakstur.
- Bakið við 110°C í rúma klukkustund og leyfið marengsinum síðan að kólna inni í ofninum í að minnsta kosti klukkutíma áður en rjóminn er settur á (gott að útbúa karamelluna á meðan og leyfa henni aðeins að kólna).
- Stífþeytið rjómann og sprautið á hverja pavlovu, skerið Snickers í bita og stráið yfir og að lokum má „drissla“ karamellu yfir hverja köku (uppskrift hér að neðan).
Karamella
- 50 gr. smjör
- 1 1/2 dl púðursykur
- 3-4 msk. rjómi
Aðferð:
- Bræðið smjörið við lágan hita, bætið þá púðursykri og rjóma saman við og hækkið hitann. Leyfið að bubbla nokkrar mínútur og hrærið stanslaust í á meðan.
- Hrærið þar til blandan fer að þykkna aðeins og leyfið þá að standa á meðan rjómi og Snickers er sett á marengsinn.
- Hellið vel af karamellu á hverja pavlovu.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir