Himnesk súkkulaðikaka með Beileys-ganache

Baileys súkkulaðikaka Svövu Gunnars.
Baileys súkkulaðikaka Svövu Gunnars. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Ef það er eitthvað sem þjóðarsálin þarfnast þessa stundina þá er það ljúffeng kaka. Þessi súkkulaðidásemd með Baileys ganache er þess eðlis að hjartað tekur aukakipp af gleði og tilveran verður töluvert bjartari.

Það er Svava Gunnars sem á þessa uppskrift en færsluna hennar í heild sinni má lesa hér:

Himnesk Baileyskaka - Ljúfmeti og lekkerheit

Súkkulaðikaka með Baileys ganache

(fyrir 8-10)

  • 200 g suðusúkkulaði
  • 200 g smjör
  • 250 g sykur
  • 5 egg, hrærð léttilega saman
  • 1 msk hveiti

Aðferð:

Bræðið smjörið í potti og bætið svo hökkuðu súkkulaði í pottinn. Hrærið í pottinum þar til súkkulaðið hefur bráðnað.

Takið pottinn af hitanum og hrærið sykri í blönduna. Bætið eggjunum smátt og smátt út í og að lokum er hveitinu hrært saman við.

Setjið deigið í ca 22 cm kökuform, sem hefur verið klætt með bökunarpappír, og bakið á blæstri i um 25 mínútur við 180°. Passið að baka kökuna ekki of lengi, hún á að vera blaut í sér.

Baileys ganache:

  • 250 g rjómasúkkulaði
  • 1 dl rjómi
  • 1 dl Baileys
  • smá salt
  • 10 g smjör

Aðferð:

Hakkið súkkulaðið og setjið í skál. Setjið rjóma, Baileys og salt í pott og hitið að suðu. Hellið blöndunni strax yfir súkkulaðið og látið standa í 1 mínútur.

Hrærið svo saman þar til blandan er slétt. Hrærið smjöri saman við. Það getur verið gott að nota töfrasprota til að fá mjúka áferð en það er ekki nauðsynlegt. Kælið blönduna, hún þykknar við það. Smyrjið yfir kökuna og skreytið að vild.

Það er ekkert að þessu.
Það er ekkert að þessu. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka