Snöggeldaðar núðlur með gourmet kjöti og eggjum

Svona lítur þessi dásemdar núðluréttur út.
Svona lítur þessi dásemdar núðluréttur út. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Hvað er meira viðeigandi í dag en snöggeldaðar núðlur með gourmet kjöti og soðnum eggjum? Nákvæmlega ekki neitt og því er ekki um annað að ræða en að draga fram grillið eða steikarpönnuna og hefjast handa. 
Núðlurnar gera það að verkum að rétturinn telst mánudagshæfur en alvöru gourmet grallarar spyrja ekki að því hvaða dagur er þegar kemur að því að borða góðan mat. 
Það er meistari Ragnar Freyr Ingvarsson sem á þessa uppskrift og í hlekknum hér að neðan er hægt að sjá ítarlegar myndskýringar Ragnars.
Kjötið skiptir máli en Ragnar notar Prime.
Kjötið skiptir máli en Ragnar notar Prime. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
Snöggeldaðar núðlur með grilluðum lambaprimerib og soðnum eggjum
Fyrir sex
  • 600 g lambaprime
  • 4 msk jómfrúarolía
  • 4 msk soyasósa
  • 5 cm engifer
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 rauður chili
  • 1 sítrónugras
  • 2 msk thaí-chilisósa
  • 4 vorlaukstoppar
  • 2 msk hökkuð steinselja
  • salt og pipar
  • 200 g kastaníusveppir
  • 1 gul papríka
  • 2 rauðar snakk papríkur
  • 4 vorlaukar
  • 1 box mungbaunir
  • 1 púrrlaukur
  • 1 rauðlaukur
  • 1 pakki heilhveiti núðlur (soðnar í kjúklingasoði)
  • 4 egg
  • 4 msk soyasósa
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 cm engifer
  • 1 rauður chili
  • 2 msk thaí-chillisósa
  • smávegis af lambamarineringunni
  • salt og pipar
Aðferð:
  1. Lambaprimerifjasteik er að ég held vanmetin kjötbiti. Hún hentar bæði í snögga eldun eins og lundir og lambarifjur sem og langa eldun þar sem fitan nær að bráðna. 
  2. Það þarf þó að eiga aðeins við bitann til þess að hann henti vel fyrir snögga eldun eins og þessa. 
  3. Ég byrjaði á því að "butterfly-a" kjötið". Það gerir maður með því að skera í jaðarinn og fletja það svo út og halda áfram þannig að maður er kominn með jafnþykkan bita. 
  4. Ég endurtók leikinn með alla þrjá bitana þangað til að ég var kominn með jafnþunnar sneiðar. 
  5. Svo útbjó ég marineringuna; blandaði jómfrúarolíunni, soyasósunni, hvítlauk, chili og engifer saman. Salt og pipar.
  6. Lagði svo kjötið saman við og sá til þess að bitanir væru vel hjúpaðir. Skreytti með smátt skornum vorlauksprotum og lét standa til að marinerast í rúma klukkustund á meðan ég skellti mér í pottinn.
  7. Svo skar ég niður rauðlauk og púrru og steikti í jómfrúarolíu þangað til að það var mjúkt á heitri wok pönnu.
  8. Skar svo niður afganginn af grænmetinu og kryddinu og blandaði saman við og steikti í um kortér þangað til það var mjúkt, ilmandi og eldað í gegn.
  9. Sauð svo núðlurnar eins og lög gera ráð fyrir í fjórar mínútur í kjúklingasoði þangað til að þær voru eldaðar í gegn. 
  10. Þegar núðlurnar voru tilbúnar blandaði ég þeim saman við grænmetið og lét standa á meðan ég grillaði kjötið. 
  11. Sauð fjögur egg í söltuðu vatni á meðan ég stóð við grillið.
  12. Það þarf ekki að hafa mörg orð um hvernig á að grilla lambaprimerifjasteik. 
  13. Ég penslaði kjötið reglulega og snéri því einnig á fimmtán sekúnda fresti þannig að það brinni ekki. Það var talsvert af olíu í marineringunni þannig að logarnir gusu reglulega upp á grillinu. En það skiptir ekki máli hafi maður snöggar hendur í snúningum. 
  14. Kjötið varð alltént gullfallegt. Gljáð að utan og lungamjúkt að innan.
  15. Svo var bara að raða réttninum saman. Setti núðlurnar og grænmetið á stórt fat og lagði skornar lambaprimesteikurnar ofan á. Skreytti með eggjum (sem áttu auðvitað að vera soðinn aðeins minna en myndirnar gefa til kynna) og svo vorlaukssprotum og ferskum kóríander. 
Núðlurnar steiknar eftir kúnstarinnar reglum.
Núðlurnar steiknar eftir kúnstarinnar reglum. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert