Sumarleg sítrónukaka bætir geðið

mbl.is/Maria Gomez

Það er ekkert grín að búa á þessu landi eins og sumarið hefur verið og því þurfum við að vera þeim mun duglegri að borða góðan mat og gera okkur glaðan dag. 

Þessi sítrónukaka er í reynd hrákaka sem er fínt fyrir þá sem eru mótfallnir ofnum en kakan þykir dásamlega góð og sjúklega fersk. Það er María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að henni en upphaflega er kakan komin úr smiðju Sollu á Gló. María segist hafa bætt nokkuð vel í miðjuna þannig að kakan sé tertulegri og því höfum við úrskurðað að Solla og María eigi ákaflega vel saman. 

Sumarleg sítrónukaka bætir geðið

Best er að geyma hana í frysti og taka hana út 1-2 klst. áður en á að borða hana. Ef það kemur eins og dropar upp á súkkulaðið þegar hún stendur á borðinu, þurrkið það þá varlega af með eldhúspappír.

Úr þessari uppskrift fæst ein dásamleg kaka með þykkri miðju ef notað er 18 cm smelluform með lausum botni. En í þessa fersku og sumarlegu köku þarf:

Botn

  • 100 g kókosmjöl
  • 100 g hnetur, t.d. pekan eða möndlur
  • 30 g hreint kakóduft
  • 250 g döðlur

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja hnetur, kókosmjöl, kakóduft og salt í matvinnsluvél og látið blandast saman og hneturnar malast.
  2. Bætið döðlunum út í og blandið þar til þetta klístrast vel saman.
  3. Þrýstið botninum niður í formið og geymið í kæli/frysti meðan þið útbúið fyllinguna.

Millilag

  • 6 dl  kasjúhnetur lagðar í bleyti í 1-2 klst. (eða 2 pokar frá Himneskt)
  • 1 dl kókospálmasykur
  • 1 dl hlynsíróp
  • 1 1/2 dl kókósolía
  • 2 dl sítrónusafi
  • 2 msk. sítrónuhýði
  • 4 tsk. vanilla (duft er best)
  • 1/2-1 tsk. sjávarsalt

Aðferð:

  1. Bræðið kókósolíuna með því að hafa hana í lokaðri krukku og hafa krukkuna ofan í skál með heitu vatni.
  2. Setjið næst allt hráefnið í blandara og blandið þar til það er orðið silkimjúkt og kornlaust
  3. Hellið næst fyllingunni yfir botnin og sléttið jafnt úr henni
  4. Setjið svo í frysti meðan þið útbúið súkkulaðið ofan á

Súkkulaði ofan á:

  • 1 dl kókósolía brædd undir krana í krukkuni. (Ég blanda stundum líka kakósmjöri og kókósolíu saman 50/50 eða bara í þeim hlutföllum sem þið viljið).
  • 1 dl kakó
  • 1/2 dl agavesíróp eða hlynsíróp

Aðferð:

  1. Þegar olían er orðin alveg brædd setjið hana þá í skál og setjið kakó og agavesíróp út í.
  2. Hrærið saman með gaffli en passið að hræra ekki of mikið þá hættir súkkulaðinu til að verða kekkjótt. Gott er að hræra með stórum hringjum og hægt þar til súkkulaðið er orðið glansandi og silkimjúkt.
  3. Takið nú kökuna úr frystinum og hellið súkkulaðinu yfir.
  4. Setjið aftur í frysti og látið standa þar í a.m.k. 3 klst.
  5. Takið svo út 1-2 klst. áður en á að neyta hennar. Mér finnst best að hún sé aðeins frosin en þá dugar 1 klst., jafnvel 30 mínútur, til þess að hún mýkist.
mbl.is/Maria Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert